Saturday, August 26, 2006

Ég er ekki að átta mig á tölvunni minni !!

Ég er hér í OgVoda vinnu og sá að það voru 4 comment á síðunni minni, en ef ég fer á netið heima sýnir hún 0 comment. Ég ekki skilja, fer heim á eftir og hristi tölvuna til ;o) Geri hókí pókí og sný mér í hring... þá lagast allt er þaggi ??

Jæja mín búin í fríinu góða og get eiginlega ekki beðið bara eftir jólafríinu núna. Er búin að plana nokkrar jólagjafir og nú þegar búin að setja upp lista í Exel með því sem ég ætla að föndra og þær jólagjafir sem verða heimatilbúnar þessi jólin svo er bara að vinda sér í verkin. Svo nöttulega ætla ég að þæfa á Katrínu smá bleikt eitthvað... heyrðu og ég má nú ekki gleyma prjónaskapnum, Mín er búin að vera að prjóna þessa glæsilegu peysu og er alveg að verða komin upp að öxlum, vil taka það fram að ég hef aldrei ég endurtek aldrei náð svona langt með nokkurn prjónaðan hlut nema jú töskuna góðu þarna um árið.

Nú er menninganótt liðin með öllu sínu húllumhæ, unglingaforeldrar kvarta og löggan réð ekki við neitt og þurfti víst að fá aðstoð alla leið frá Ísafirði og Selfossi, ætli lögreglan þar sé von brjálæðingum og haugafullum 16 ára börnum ?? Ja maður veit aldrei. En strax eru hafnar umræður hvernig þetta ætti að vera á næsta ári, á að flytja þetta yfir á sunnudag ?? Ja maður spyr sig, mér finnst ósköp spennandi og skemmtilegt að hafa þetta á laugardegi en ætli það sé ekki bara þangað til mín dama verður unglingur og vill fá að fara þetta. En ég hef ákveðið fyrir svooo löngu síðan að ég verð svo skemmtileg mamma að hún vill bara vera með mér hehehe " in my wildest dreams " En við tökum á því þegar þar að kemur hehe

En málið er að ég skemmti mér konunglega þessa menninganótt (takk fyrir skemmtilegt kvöld alles) þrátt fyrir að hafa ekki hlaupið 10 km þá heppnaðist þessi dagur fullkomlega og langt síðan ég hef algjörlega misst mig í gleðinni og var hauslaus eftir því, og eins og flest allir sem ég þekki hafa frétt þá skaust ég uppá svið og tók nokkur spor með Stefáni mínum sem tók ekkert svo illa í þetta uppátæki en það var eitthver sviðsmaður sem varð svona líka afbrýðisamur (veit ekki hvort það var útí mig eða Stebba) en maðurinn allavega grýtti mér útaf sviðinu (ætli afbrýðisemin hafi þá ekki verið frekar í minn garð),en það er víst bannað að koma við goðin hahaha. En skemmtilega við þetta er að Katrín náði mynd af þessu eða allavega þegar maðurinn henti mér útaf sviðinu... auðvitað klikkar Katrín aldrei þegar það kemur að myndaefninu. Mundi setja þessa mynd hér inn ef ég kynni en sorrí ég kann ekki þannig að þið verðið bara að nota ímyndunaraflið og reyna að sjá atburðin fyrir ykkur. Ég sé hann allavega ennþá fyrir mér ;o)

Eftir Nasa fórum við þrjár ég, Katrín og Svana (Úr Jónum) á Sólon og dönsuðum rassana af okkur þar til... ja við skulum bara segja fram eftir morgni hehe og þegar við röltum niður í bæ þegar það var búið að loka og flest allir farnir heim þá sáum við hvurslags eiginlega draslarar við Íslendingar erum og hvaða nískupúkastarfsemi er það eiginlega að splæsa ekki í fleyri og stærri ruslatunnur og common people nota ruslatunnurnar !! Þetta var einstaklega ófögur sjón og særði mitt hreinlega hjarta ;o)

Ég verð að segja frá Carpe Diem við bókuðum borð fyrir 14 manns, ótrúlega gaman. Öllum hlakkaði mikið til að fara svona stór hópur út að borða og þar sem þetta er doldið dýr staður bjóst ég eiginlega við að maturinn þarna væri mjög góður og að þetta væri flottur staður. En þegar á staðinn var komið varð ég fyrir smá vonbrigðum og bjóst eiginlega við flottari stað en hugsaði bara ok þetta er nú alltí góðu. Það var nú búið að skipta hópnum okkar á 2 borð sem ég var nú ekki hrifin af pointið með að fara svona mörg saman var að vera saman á borði en við bara færðum borðin saman ekkert mál og sátum spjölluðum og hlóum og allt voða gaman, nú frá því að við pöntuðum matinn og þangað til við fengum matinn leið rúmlega klukkutími, sko langflestir voru með tiltölulega auðveldan mat, eins og t.d. fisk, kjúkling og súpu og svo nokkrar barnamáltíðir en eftir klukkutíma bið var fólk orðið svo svangt að það fór að slafra í sig matinn nema hvað að það voru þrír sem þurftu að senda matinn til baka, kjúklingurinn var vondur, fisisúpann var ekkert sérstök og grænmetissúpan svona lala, þetta var svo misheppnað og þjónustan þarna svo slök að við löbbuðum út öll mjög vonsvikinn og einn meira að segja hætti við að fá sér að borða þetta var allt svo vonlaust eitthvað. En hópurinn var eiginlega sammála um að í framtíðinni eldum við heima... það er eiginlega bara miklu betra.

Og svo verð ég auðvitað að segja frá bestu kaupum aldarinnar, ég keypti stofuskáp og borðstofuborð í Hagkaup bara stórglæsilegt á helmingsafslætti, ég eiginlega keypti borðið og fékk skápin í kaupbæti... ekki slapt ;o) Ég átti líka yndislegt sumarfrí með Júlíu minni og Katrínu minni og get ekki beðið eftir næsta sumri.
Jæja nú ætla ég að fara að finna mér eitthvað að gera til að láta tímann líða, hefði átt að taka prjónana eða bók með mér ;o) Geri það kannski á morgun.
Anyway þangað til næst
Heyrumst

Saturday, August 19, 2006

Menninganótt á morgun....

Og ég vildi óska þess að ég væri að fara að hlaupa 10 km í maraþoni. En enn eitt árið var ég ekki búin að koma mér í form fyrir þetta blessaða maraþon. Nú segi ég og skrifa á næsta ári skal ég hlaupa þessa blessuðu 10 km og það eru allir velkomnir að taka á móti mér við endalínuna þegar ég fæ gullpening og fagnaðarlæti sem ætla aðdrei að stoppa..... Hlakka til eftir ár ,o)

Nú fer þessu blessaða fína góða sumarfríi mínu að ljúka, get ekki sagt að ég bíði spennt eftir að fara í vinnuna, en ætli maður taki ekki því sem kemur og drattist með rassin minn í blessaða vinnuna og kjósi mér að vera í góðu skapi alla daga. Og svo styttist í að tveggja ára planið byrji, er nú búin að vera að plana og Borghildur ætlar að byrja á að taka mig vel í gegn allan september og koma mér í stað það sem á að vera heilsuár hjá mér og líka hjá dóttur minni sem finnst ekki vont og leiðinlegt að borða góóóóóóðan mat.... já hún er sælgætisgrís. Hún er kannski ekki lík mér í útliti en blessunin hefur allt annað frá mér, og já við erum með alveg nákvæmlega eins tásur hehe

Ég hef frá ósköp litlu að segja þessa dagana, tók mig aðeins til hérna heima og er búin að gera fínt, keypti mér ný húsgögn á ekta góðu Hagkaups tilboði, eða sko ég keypti eiginlega borð og fékk skáp í kaupbæti.. bara geggjað og já fólk þarf að koma í heimsókn til að sjá ég er ekki með mynd á mér og ætla ekki að halda boð til þess að fólk komi híhí

Anyway´s ætla að rúlla uppí rúm til að vera hress og kát á morgun og fara á Nasa að horfa á hann Stebba minn ;o)
Heyrumst

Saturday, August 12, 2006

Ég er enn í fríi ;o)

Og hef það yndislega gott... við erum búin að fara í okkar yndislegu hringferð sem tók okkur aðeins 5 daga og eins og Júlía Sól sagði þegar afi hennar spurði hvað hún gerði í ferðalaginu " Ég sat í bíl" hehe en þetta var fínt mjög skemmtilegt og ég sá athyglisverða staði ... og fólk ;O) Lagarfljótsormurinn lét ekki sjá sig í þetta skiptið en það er allt í lagi var svo sem ekkert búin að mæla mér mót við hann hvort eð er ;o) Við silgdum um Jöulsárlón sem mér fannst mjög skemmtilega merkilegt og gaman að gera svona túristahluti sem maður gerir alltof sjaldan, smökkuðum mörghundruð ára gamlan klaka sem smakkaðist alveg eins og klaki en var heldur stífari undir tönn hehe það gerir öll árin í lóninu þið vitið !!! Og já ég er orðin ástfangin af landinu okkar og ætla mér að læra helling meira um það svo ég geti frætt ykkur öll um hvert og eitt einasta smáatriði, ég verð gangandi íslenskulandafræðiorðabók og viskubrunnur.. já variði ykkur bara.

Kárahnjúkar voru þarna enn og við keyrðum langan brattan veg þangað til að standa úti í brjáluðu roki og ískulda, bara svona kæru vinir ef leið ykkar liggur þangað þá takiði úlpu og góðan hlífðarfatnað, ég tók ekki eftir mótmælendum enda eru þeir víst ínná þeim svæðum sem okkur er meinaður aðgangur og ég ætlaði nú ekki að slá mér í för með þeim og verða handtekin og þurfa kannski að dúsa í fangaklefa á Egilstöðum með ekkert nema enskumælandi mótmælendum. Ég gæti alveg farið útí hvað mér finnst hérna um þetta allt saman en ég ætla mér að vera dipló og bara hafa mínar skoðanir útaf fyrir mig en er tilbúin í að ræða við hvern og einn um hvað þeim finnst, mér finnst nebblega bara gaman að heyra allra skoðanir um Kárahnjúka og álverið á Reyðafirði.

Nú Neskaupstaður átti að verða fjörstaðurinn sem við höfum stefnt á lengi en já við skulum bara segja að ég fékk menningasjokk og útskýrði þann stað mjög vel í pistli sem ég skrifaði inná síðu saumaklúbbsin sem er gefin upp hér til hliðar .. Endilega kíkið.

Annars ætlum við dúllur bara að dúllast hérna heima það sem eftir er af sumarfríinu, ég ætla að mála og gera eitthvað fallegt hérna hjá okkur. Já þannig að hafiði það gott þangað til næst ;o)
Heyrumst